,,Áður óséðar upptökur sem gera þig orðlausan...”
,,Loksins! Lifandi töfrar norðurljósanna fangaðir í hágæða upptökum!”
,,Loksins eru til einstakar, lifandi myndir af hinu undursamlega fyrirbrigði eins og það birtist á skörpum og heiðskírum heimskautahimninum!”
|
,,Hrífandi! Ég hef aldrei séð myndbandsupptökur af norðurljósunum í eins góðum gæðum. Það sem vakti athygli mína var hve myndirnar eru skýrar, hreinar og án allra truflanna. Að auki voru askjan og fylgiritin smekkleg og vel gerð. Höfundarnir eiga hrós skilið!”
Dr. Bernhard Fleck
vísindamaður SOHO-verkefnisins við Evrópsku geimvísindastofnunina. |
Frá:Helgu & Ása
í samstarfi við Aurora Experience Team.
Dagsetning:
,,Ágæti norðurljósaunnandi,
Aldrei áður í sögu kvikmyndagerðar hefur tekist að fanga norðurljósin í fullnægjandi gæðum og í rauntíma.
Þúsundir manna gerðu árum saman til þess þrotlausar tilraunir og fjárfestu himinháum upphæðum en uppskera erfiðisins var ávallt annarsflokks.
Árið 1998 ákváðu þrír íslenskir atvinnuljósmyndarar að gera tilraun til að fanga rauntímahreyfingar norðurljósanna á myndband.
Þeir höfðu yfir tveggja áratuga reynslu af norðurljósaljósmyndun og því þótti þeim tími til kominn að takast á við nýjar áskoranir.
Tæknileg sérþekking, vilji til að leita út fyrir kvíar hefðbundinna aðferða og þor til að fara ókannaðar leiðir veitti þeim, öðrum framar, svigrúm og getu til að ná markmiði sínu.
Eftir að hafa unnið óskipt við verkefnið í þúsundir klukkustunda – eftir að hafa varið sex vetrum í frosti og myrkri, fjarri fjölskyldu og vinum – uppskáru þeir árið 2004 afrakstur sem var framar þeirra björtustu vonum.
Loksins tókst að fanga víðáttumikil og undursamleg norðurljósin, á hágæða myndbandsupptökur, er þau liðu um heiðskíran heimskautahimininn.
Fyrir náð guðs og gæfu hafa geysimiklir sólvindar farið um himinn heimskautanna undanfarin ár. Íslensku frumkvöðlunum tókst einum að mynda þann stærsta sem sést hefur í þrjátíu ára sögu norðurljósamælinga.
Þessir íslensku frumkvöðlar voru svo heppnir að þeim tókst að fanga einn þann stærsta sólvind sem sést hefur í tímana rás í október árið 2003.
|
"Þessi íslenski norðurljósadiskur er kóronan í safninu mínu."
Rudy van Dalen, Hollandi. |
Sýndu einstakan smekk, með gjöf sem enginn gleymir!
Þessi 72 mínútna langi og gagnvirki DVD diskur er ekki eingöngu yfirfullur af ótrúlegustu norðurljósaupptökum sem sést hafa á hágæða filmu. Að auki er honum pakkað í fallegar umbúðir, skreyttar, gullslegnu letri.
Sýndu fágaða smekkvísi með frumlegri gjöf sem aldrei gleymist. Orkaðu af afli á fjölskyldu þína, vini eða vinnufélaga með fullkominni gjöf sem endurspeglar umhyggju og frumleika.
Þessi DVD diskur er í senn fræðandi og stórskemmtilegur. Hann inniheldur m.a. upptökur af hinni margfrægu norðurljósasýningu sem átti sér stað í október 2003 ásamt vísindalegum útskýringum á eðli norðurljósannaog frásögnum af þeim goð- og helgisögum sem af þeim hafa farið.
Auk margra myndrænna valmöguleika býðst áhorfendum að hlusta á vandaðar lýsingar á sex tungumálum: Ensku, frönsku, íslensku, japönsku, spænsku og þýsku. Allir þulir eru vel þekktir í sínu heimalandi.
Innifalinn í gjafaöskjunni er fallega myndskreyttur bæklingur sem veitir víðamiklar og nákvæmar upplýsingar um norðurljósin bæði á ensku og þýsku.
|
"Ykkar vara er allra besta kynning á norðurljósunum sem ég hef séð."
Greg A Syverson
Cinematographer, Alaska. |
Þú þarft ekki að ferðast til heimskautanna til að sjá hina heillandi dans- og litrófssýningu norðurljósabjarmans
Þúsundir manna ferðast árlega til heimskautasvæðanna til þess að sjá og upplifa sjónarspil norðurljósanna. Á norðurhveli jarðar er ómögulegt að sjá þau yfir sumartímann vegna þess að þar er dagbjart allan sólarhringinn en norðurljósin eru sýnilegust í kolmyrkrinu frá september og fram í apríl.
Til að gefa lesendum vísbendingu um magn sumardagsljóss á norðlægum slóðum má nefna að í júní búa íbúar heimskautasvæða við fyrirbæri er kallast miðnætursólin. Þá sest sólin ekki heldur ber hana eldrauða við sjóndeildarhringinn, á þeim tíma sólahrings þegar löngu er almyrkvað í suðlægari löndum.
Til að upplifa norðurljósin er því nauðsynlegt að vera á norðurslóðum á tímabilinu frá september og fram í apríl. Þegar norður á boginn er komið þarf að ferðast langt inn í landið, burt frá ljósmengun – sérstaklega borgarljósum því þau draga að miklu leyti úr skyggni og skýrleika.
Það er mjög dýrt að ferðast til landa heimskautanna. Kuldinn nístir inn að beini og almyrkvað er nánast allan sólarhringinn. Þess utan er hvergi nærri tryggt að norðurljósin sjáist meðan á dvölinni stendur.
Hingað til stóðu þeim sem langaði að berja norðurljósin augum enungis til boða ljósmyndir, lággæða myndbandsupptökur, eða fokdýrt ferðalag um heimskautasvæðin.
Til að bæta gráu ofan á svart gæti þurft að bíða í vikur, jafnvel mánuði til að sjá vott af heiðskírum himnum vegna hins fræga, óútreiknanlega heimskautaveðurs.
Biðin er á enda … Norðurljósabjarmabandið veitir þér 72 mínútur af himneskum gjörningi elds og kulda. Slakaðu á með vinum og fjölskyldu og njóttu þessara einstöku rauntíma norðurljósamyndskeiða í skörpum og fullkomnum náttúrulitum, eins og aldrei áður hefur verið mögulegt.
Það sem þú færð í DVD öskjunni þinni!
Innifalið í gjafaöskjunni:
59 mínútur af hrífandi, hágæða, rauntíma myndbandsupptökum af norðurljósunum, m.a. upptaka af hinni frægu “Rauðdanssýningu” frá október 2003!
68 ólíkir þættir ótrúlegra norðurljósasýninga sem myndaðir eru víðsvegar um Ísland og sýna undursamlegustu hreyfingar, liti og mynstur þessa töfrandi náttúrufyrirbrigðis!
Undir sýningunni hljóma hrífandi tónar "Plánetanna" eftir Gustavs Holst, sem leikin er af “The Royal Scottish National Orchestra”!
Sex tungumálavalmöguleikar: Enska, franska, íslenska, japanska, spænska og þýska!
72 ævintýralegar ljósmyndir sem sýna fjölbreytta litadýrð og margvíslega form- og mynsturgerð norðurljósanna!
Fallega myndskreyttur, sextán síðna, bæklingur veitir nákvæmar upplýsingar um norðurljósin á ensku og þýsku!
Safngripur í vönduðum harðpappaumbúðum með gullslegnu letri!
Þessi magnaði dvd diskur er til í 2 útgáfum:
| Aurora Borealis DVD Original, price only 35$ plus s&h |
|
| Aurora Borealis DVD Limited , price only 55$ plus s&h |
|
DVD diskurinn er yfirleitt póstlagður innan tveggja virkra daga. Sendingartími fer eftir áfangastað.
Vinsamlegast munið að gefa upp heimilisfang, fullt nafn og símanúmer eða tölvupóstfang svo tryggt sé að pöntunin rati á réttan stað.
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!
Kveðja,
Helga & Ási .
info@northernlightlive.com
DVD´S - BOOKS - POSTCARDS - SPECIAL OFFERS - VIDEO PREVIEWS
|